Tíðindi

Hvað eiga Súdan og Grænland sameiginlegt?

  13/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Hvað eiga þessi lönd eiginlega sameiginlegt: Súdan, Grænland, Mongólía, Tadsjikistan, Pakistan og Líbanon? Jú, öll eru þau á topplista lesenda tímaritsins Wanderlust sem heitustu nýju ferðamannastaðirnir árið 2012.

Wanderlust er þekkt ferðatímarit í Bretlandi og sækir lesendahóp sinn aðallega í kröfuharða en ævintýragjarna neytendur sem oftar en ekki eiga einhverja peninga í reiðuleysi.

Hversu ævintýragjarnir? Það er til dæmis Japan sem var valinn áfangastaður ársins 2012 þó það ágæta land færi vart á nokkra hefðbunda lista rúmu ári eftir gríðarmikinn jarðskjálfta og flóð.

En þar sjá hinir ævintýragjörnu einmitt tækifærið því ferðamannastraumur til landsins hefur hríðfallið og nú er hægt að þvælast um Japan án þess að lenda eilíft í öðru ferðafólki og á sama tíma spara peninga því verðfall hefur orðið á gistingu og mat á sama tíma.

Og samkvæmt sama fólki er það Súdan sem er heitasti áfangastaðurinn 2012. Í öðru sætinu eru vinir okkar og nágrannar í Grænlandi og í því þriðja er Mongólía eins og hún leggur sig. Fleiri forvitnilegir staðir sem komast á topplistann eru Tadsjikistan, Líbanon og Pakistan. Engir þessara staða kæmust svo mikið sem á blað hjá hefðbundnari tímaritum á borð við Lonely Planet eða National Geographic Travel.

Listi Wanderlust hér fyrir þá sem leið eru komnir með á öllu þessu hefðbundna.