Tíðindi

Fátækir ferðast mun minna

  14/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Það eru engin ný tíðindi að himin og haf sé milli lífsgæða þeirra sem feitt fá launaumslag um hver mánaðarmót og hinna sem berjast í bökkum.

Ný ferðakönnun staðfestir þetta með afgerandi hætti en þar kemur fram að 81,5 prósent aðspurðra með góðar tekjur ætla erlendis á árinu en helmingi færri, 40,9 prósent, í þeim hópi sem er með lágar tekjur.

Framkvæmdi MMR könnun þessa fyrir Ferðamálaráð og birtust niðurstöðurnar í morgun. Er þar aðallega spurt um ferðalög innanlands en aðeins vikið að ferðalögum út fyrir landsteinanna líka.

Samanlagt ætla 81,5 prósent einstaklinga með heimilistekjur umfram 800 þúsund krónur í ferðalög erlendis á árinu og eru þá ekki meðtaldar vinnuferðir. Þetta hlutfall minnkar um helming, 40,9 prósent, hjá þeim með heimilistekjur undir 250 þúsund krónum sem líklega eru tekjur stórs hluta Íslendinga eftir skatta og skyldur.

Sérstaklega er mikill munur hvað borgarferðir varðar. Þannig ætla 51,4 prósent hina velsettu að drífa sig í borgarferð á árinu á móti 20,3 prósentum þeirra sem minna hafa milli handanna.

Munurinn er mun minni þegar spurt er um sólarferðir. Þar segjast tæp 27 prósent með tekjur yfir 800 þúsund ætla í slíka ferð 2012 meðan 20 prósent tekjulágra ætla líka að striplast á sólarströndum þetta sumarið.