Tíðindi

Fleiri hraðtilboð Icelandair

  15/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Fjögur ný hraðtilboð Icelandair hafa litið dagsins ljós. Eru þar í boði ferðir til Svíþjóðar, Kanada og Englands á lækkuðu verði næsta sólarhringinn.

Í boði í þetta skiptið er fargjald til Gautaborgar á 14.900 aðra leiðina og 28.500 krónur fram og tilbaka. Er þetta aðeins í gildi frá 15. júní til 16. júlí sem er fínn tími í Svíþjóð. Ekki síst er tónlist á upp á pallborðið því 24. til 28. júní fer þar fram Tónlistarhátíð Gautaborgar, Göteborg Music Festival, sem þykir með þeim betri á Norðurlöndunum og hefur verið haldin í 25 ár.

Ekki langt frá Gautaborg er Stokkhólmur sem einnig er á tilboði nú. Miðaverð aðra leið 14.900 krónur og 28.800 krónur báðar leiðir. Þar er aftur á móti ekki sumarflug í boði heldur verður að taka flugið frá 16. apríl til 11. júní. Aðdáendur Ozzy Osbourne geta látið sér það lynda því karlinn er með tónleika þann 28. maí í Klukkuturninum, Klocktornet á frummálinu.

Þá ná aðdáendur Manchester United eða City að taka inn boltaleik á þeim tíma sem tilboð Icelandair nær til Manchester. Önnur leiðin á 14.900 og báðar á 30.400 krónur en fljúga verður frá 11. apríl til 31. maí. Nóg af leikjum á þeim tíma.

Að síðustu er tilboð til Halifax í Nova Scotia í Kanada. Þar aftur er í boði að dvelja þegar sól vermir vanga því flugið er milli 7. júní og 7. júlí. Engin ósköp að gerast þar en borgin sérstök og nóg að skoða í grenndinni.

Heimasíða Icelandair hér.