Keflavíkurflugvöllur er besti flugvöllur heims með farþegafjölda undir tveimur milljónum árlega samkvæmt úttekt Airport Council International. Er reyndar völlurinn talinn sá besti í Evrópu en kom ekki til álita fyrir þau verðlaun vegna smæðar sinnar.

Fer niðurstaðan eftir þjónustukönnun á hverjum flugvelli fyrir sig þar sem farþegar á leið um flugvöllinn svara 36 spurningum um gæði hans og þjónustu.

Samkvæmt tilkynningu frá Isavía skarar Keflavíkurflugvöllur framúr í heildaránægju farþega, kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, auðveldu tengiflugi, notalegu andrúmslofti, hreinlæti og biðtíma í öryggisleit.

Sömuleiðis eru farþegar mjög ánægðir með skjóta afgreiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjónustu og veitingastaði í flugstöðinni.

Alþjóðaflugvöllurinn á Möltu var valinn besti evrópski flugvöllurinn síðasta árið en Incheonflugvöllur í Suður Kóreu bestur á heimsvísu.