Viðurkenndu það bara. Þó þú sért ekki með áskrift að feitum sjálfstæðis- eða framsóknararfi eða sonur eða dóttir Þórólfs Gíslasonar í Skagafirði, hefur þig samt lengi dreymt um að þvælast um borg og bí án þess að hafa standandi áhyggjur af reikningnum þegar heim er komið.

Ódýrasta borg heims 2016 að mati Tripadvisor er Hanoi í Víetnam. Mynd Brehrr

Ódýrasta borg heims 2016 að mati Tripadvisor er Hanoi í Víetnam. Mynd Brehrr

En hvaða borgir heims í hvaða löndum heims eru léttastar á pyngjunni? Hvar er hægt að hola sér niður í nokkrar vikur, sækja viðburði, drekka flott rautt og leyfa sér hluti án þess að fá skeifu og mínus í kladdann frá starfsmanni í Arion-banka, Landsbanka eða Íslandsbanka þegar heim er komið?

Svörin gætu komið þér aðeins á óvart. Í það minnsta ef mark er á takandi nýjum lista Tripadvisor um þær borgir heims þar sem ódýrast er að dvelja og njóta  um hríð.

  • Hanoi, Víetnam
  • Bombay, Indland
  • Höfðaborg, Suður-Afríka
  • Kuala Lumpur, Malasía
  • Moskva, Rússland
  • Balí, Indónesía
  • Madríd, Spánn
  • Berlín, Þýskaland
  • Vín, Austurríki

Dabbadona! Vín! Moskva! Madríd!

Við höfum jú síðustu misserin fregnað að þessar evrópsku borgir séu nú dýrari en ekki. Nema Tripadvisor segir svo ekki vera. Prísar í Moskvu hafa jú lækkað töluvert heilt yfir eftir að í brýnu sló við NATÓ. En Madríd og Vín? Það eru fregnir sannarlega.

Út með þig 🙂