Slæmar fréttir fyrir Bjarna Benediktsson og Ingva Hrafn Jónsson og þeirra kvinnur, börn og barnabörn og aðra sem elska Flórídasól. Hinn afleiti zíka-vírus hefur nú fundist í ríkinu.

Hinn viðbjóðslegi zíka-vírus hefur nú gert vart við sig í Flórída.

Hinn viðbjóðslegi zíka-vírus hefur nú gert vart við sig í Flórída.

Þessu hafa fræðingar lengi spáð og reynst sannspáir. Sú tegund moskítóflugna sem ber með sér þennan djöfullega vírus virðist hafa komist alla leið norður til Bandaríkjanna frá Suður-Ameríku og minnst fjórir einstaklingar í Flórida smitaðir þrátt fyrir að hafa ekki ferðast neitt lengra en út í sjoppu síðustu áratugina.

Enginn heimsendir en fyrir barnshafandi Flórídaelskandi konur gæti verið ráð að láta Kanarí duga í bili, vírusinn er nefninlega talinn geta haft alvarleg neikvæð áhrif á fóstur í móðukviði.

Ekkert er þó óyggjandi sannað enn sem komið er. En varinn er jú góður 😉