Eitt af því sem kemur mörgum sem ekki eru á faraldsfæti lon og don á óvart er að til að komast til og frá flugvöllum í grennd við London þarf oftar en ekki að greiða verulegar fúlgur fjár til að komast inn í borgina með hvað fljótlegustum hætti.

Okurverð er á lestarferðum frá Heathrow beint inn í borgina.

Okurverð er á lestarferðum frá Heathrow beint inn í borgina.

Þannig kostar fimmtán mínútna lestarferðin frá Heathrow inn í miðborg London þegar þetta er skrifað litlar 3.870 krónur með Heathrow Express. Hefur verðið þó lækkað frá því í vor þegar sami túr kostaði 400 krónum meira sökum flökts á krónunni okkar yndislegu.

Þannig þurfa til dæmis þessar þrjár vinkonur sem Icelandair notar í auglýsingum sínum og kíkja aðeins erlendis til að lyfta sér upp, að greiða rétt tæpar tuttugu þúsund krónur bara fyrir að fara frá Heathrow flugvelli og til aftur fyrir brottför. Það er ekki upphæð sem meðaljón og meðalgunna hlægja mikið að.

Heathrow flugvöllur er reyndar ágætlega settur því þaðan er hægt að taka jarðlestina, Underground, beint inn í borgina. Sá túr tekur reyndar hátt í klukkustund og ekki eru sætin beint þægileg en það þó í boði og miðaverð aðra leiðina tæplega 1400 krónur þegar þetta er skrifað. Sömu þrjár vinkonur þyrftu því alls að greiða 4.200 krónur í jarðlestinni aðra leið.

Nema það er ekki ýkja spennandi að hefja borgarferðina í troðinni jarðlest og slíkt er einfaldlega ekki í boði frá öðrum helstu flugvöllum kringum London. Ekki heldur eftirsóknarvert að taka leigubíl þessa leið enda getur slíkur túr kostað allt upp í 20 þúsund krónur ef umferð er mikil.

Það er hins vegar ein lausn sem er sennilegast sú vænlegasta þegar öllu er á botninn hvolft. Það eru leigðir bílar sem við kjósum að kalla svo en það eru leigubílar sem þarf að panta fyrirfram eða í versta falli hringja á. Þeir, með öðrum orðum bíða ekki við flugstöðina nema eftir því sé óskað.

Nokkrir slíkir aðilar finnast í London og verð þeirra eru allgóð ef fólk er ekki með of mikinn farangur meðferðis. Túr með slíkum bíl frá Heathrow inn í miðborg London kostar fast verð og skiptir því engu hvenær dags fólk tekur slíka bíla né heldur hversu lengi túrinn tekur. Þeir nota ekki mæla. Verð fer alveg niður í 40 pund hjá þeim ódýrustu eða 7.800 krónur miðað við miðgengi dagsins sem þýður að sömu þrjár stelpur skipta því á milli sín og borga 2.600 krónur á mann. Það er verð sem hægt er að greiða án þess að taka andköf og þægindin til staðar. Þá fer sá bíll með fólk alla leið á áfangastað.

Trixið hér er að vera ekki með of mikið af farangri því þetta eru hefðbundnir leigubílar og meira en tvær stórar töskur komast einfaldlega ekki fyrir.

Tvö slík fyrirtæki sem þjónustu veita frá öllum helstu flugvöllum hér og þykja góð til brúksins eru London Heathrow Cars og Great Britain Cars. Bíla beggja þarf að bóka fyrirfram á netinu en þeir bíða líka ef flug tefst og hjálpa til við farangur. Þá er hægt að greiða fyrirfram með korti ellegar með peningum á áfangastað.

Gróflega má reikna með að verð hjá þessum aðilum sé kringum 8.000 krónur inn í miðborg frá Heathrow, 8.500 krónur frá Gatwick, 8.300 frá Stansted og 8.700 frá Luton. Það verð er á bíl sem allt að fjórir geta skipt á milli ef svo ber undir.