Þann 31. júlí síðastliðinn birtist á fésbókarvegg ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn kvörtun farþega hvers fjölskyldufrí reyndist martröð sökum viðgerða á fjögurra stjörnu hóteli sem dvalið var á á Spáni. Kemur þar fram að viðkomandi hafi um tíu daga skeið reynt að fá mál sín leiðrétt án árangurs. Nú, rúmum TVEIMUR mánuðum síðar er enn ekki búið að svara viðkomandi.

Engin viðbrögð við tveggja mánaða gamalli kvörtun viðskiptavinar Úrval Útsýn

Engin viðbrögð við tveggja mánaða gamalli kvörtun viðskiptavinar Úrval Útsýn

Nú ætlar Fararheill ekki að leggja dóm á kvörtun viðkomandi per se þó hún virðist lögmæt. Ýmis konar hávaðasamar viðgerðir á hóteli eru vart til þess fallnar að fólk sem þar dvelur njóti sín í þaula eins og lesa má um hér að neðan. Þó er raunin svo líka að fólk vill oft ýkja óþægindin svona eftir á og gera meira úr en efni voru til.

En það er varla í samræmi við þá stefnu Úrval Útsýn „að bjóða góða þjónustu“ né heldur eðlilega viðskiptahætti að hundsa hundrað prósent slíkar kvartanir. Þaðan af síður er það mjög sniðugt því hérlendis þekkja flestir flesta og með síaukinni samkeppni skiptir sífellt meira máli að fólk fari sátt frá borði.

Frá sjónarhóli ÚÚ vegna þess að engin auglýsing er betri eða verðmætari en fólk sem mælir fullum hálsi með ferðum þeirrar ferðaskrifstofu. Sérstaklega vegur það þungt ef viðkomandi lenti í vandræðum en fékk samt þjónustu fram yfir gröf og dauða eða fullar bætur fyrir og afsökunarbeiðni í plús. Sá aðili mun áfram tala vel um fyrirtækið í vinahópnum og jafnvel gefa því toppeinkunn. Það er nefninlega svo að fyrirtæki, jafnt sem fólk, eru best dæmd af viðbrögðum við erfiðum aðstæðum.

Í þessu tilliti má ekki gleyma að þarna er yfirleitt ekki bara fúll á móti að skrifa bréf í einhverjum hefndarhug. Tæplega hálfrar milljón króna sumarleyfisferðir eru oftar en ekki einu ferðir ársins sem margar fjölskyldur á Íslandi geta veitt sér umfram hið hefðbundna á árs grundvelli.

En kannski á þetta ekki að koma á óvart. Eigandi Úrval Útsýn er Pálmi Haraldsson fyrrum eigandi Iceland Express. Það hundsaði ítrekað kvartanir á hendur þess fyrirtækis eins og Fararheill fjallaði um á sínum tíma. Og hvernig endaði svo það ævintýri allt saman?

Kvörtun farþegans frá 31. júlí 2013 hér að neðan. Henni hefur enn ekki verið svarað.

Góðann dag. nú eru komnir 10 dagar síðan ég sendi eftirfarandi bréf á ykkur og ætla að pósta því hér. ég er ekki sátt við það að manni sé ekki einu sinni svarað. Góðann dag.

Ég verslaði hjá ykkur ferð fyrir okkur hjónin til Alicante bókunarnúmer
uu-218471 frá 9 júlí- 19 júlí síðastliðinn og dvöldum á hótel Melía sem á að
heita 4 stjörnu.Við héldum af stað voða spennt að komast nú loks í langþráð frí
frá amstrinu á íslandi því allar myndir og lýsing á hótelinu lofuðu mjög góðu.
Við vorum komin á hótelið um kl 1 um nótt og því hvíldinni fegin þrátt fyrir
frekar mikinn hita í herberginu. á slaginu klukkan 8 um morguninn hrukkum við
upp við þvílíkan hávaða og læti sem reyndust vera iðnaðarmenn í vinnu við
framkvæmdir fyrir framan hótelið. allt í lagi ,við hugsuðum sem svo að þetta
væri bara eitthvað tilfallandi þennan daginn og drifum okkur á fætur og niður í
morgunmat. þar voru bara lika iðnaðarmenn að störfum við einhverjar breytingar
með tilheyrandi hávaða og óhreynindum. í anddyrinu var barnum lokað einn daginn
og allt rifið niður. sólbað á sundlaugarsvæðinu var heldur ekki í friði fyrir
iðnaðarmönnum með strahatta og borvélar. Hvað var í gangi þarna eiginlega , var
húsið enn í byggingu ? þetta leit alls ekki út fyrir að eiga 40 ára afmæli á
árinu. Það var ekki fyrr en á sjötta degi að við uppgötvuðum hver aldur hússins
var þegar vatn fór að renna niður veggi inn í fataskápnum hjá okkur. þá fengum
við iðnaðarmann inn á okkur það kvöld og þar kom skýringin á hitanum í
herberginu, kælingin var hreinlega biluð, við sváfum mjög illa vegna þess en ég
geri nú þá kröfu á ,með bestu hótelum í borginni að þeir hafi þessa hluti í
lagi. Einnig má benda á að 1 lyfta hússins var alltaf að bila og fólk að
festast í henni. Annar hlutur sem mér var ekki að skapi en kanski ekki alveg á
ábyrgð hótelsins er að bílastæði eru engin og borguðum við rúmar 200 evrur
fyrir stæði sem er staðsett er undir hótelinu og vorum við bara með bílinn þar
yfir nóttina eða ca 13 tíma að meðaltali. Ég verð nú að segja að ég hef fengið
betra 2ja stjörnu hótel en þetta og því er mér spurn hvað þið ætlið að gera í
málinu? þetta frí var algert klúður af ykkar hálfu og alls ekki það sem ég
taldi mig vera að borga fyrir, því miður.
Hvað varðar innskráninguna í flugið á spáni , þar vorum við skráð sem 5 manna
fjölskylda með ungabarn, hvað er málið með það? auk þess áttum við að sitja í
sitt hvorum endanum á velínni sem ekki kom til greina því mér er ekki vel við
að fljúga og gæti ekki hugsað mér að sitja annarsstaðar en hjá mínum manni, því
munaði minnstu að við hættum við að fara , það reddaðist á síðustu stundu.

semsagt, ónýtt frí fyrir 348.840 krónur og ég get ekki séð á þessari stundu af
hverju fólk ætti að versla við fyrirtækið.

Mbk OG VON UM VIÐBRÖGÐ