Það er alltaf til marks um annaðhvort metnaðar- eða peningaleysi þegar vinsælir vefir eru ekki uppfærðir reglulega. Hvort gildir um Sumarferðir skal ósagt látið en á vef ferðaskrifstofunnar er enn verið að auglýsa ferðir til Benídorm, Almeríu og Tenerife sumarið 2013.
Þetta gengur í fámenninu hér á landi en hver sú ferðaskrifstofa erlend sem byði upp á slíkan pakka löngu eftir að sumar er liðið entist líklega ekki lengi. Því ef metnaðurinn er ekki meiri á vefnum hvernig er þá metnaðurinn gagnvart viðskiptavinum að öðru leyti?







