Þó enginn íslenskur fjölmiðill hafi fylgt því máli eftir frekar en endranær þá er orðið kyrrlátt á nýjan leik í Egyptalandi eftir óeirðir þar í sumar eftir að kjörnum forseta landsins var steypt af stóli. Það olli blóðbaði á götum úti í Kaíró og nokkrum öðrum borgum landsins.
Íslenska utanríkisráðuneytið, aldrei þessu vant, varaði þegna við ferðalögum á þær slóðir mörgum dögum eftir að átök voru í hámarki en látum það liggja milli hluta. Full ástæða til enda höfðu á þeim tímapunkti velflestar aðrar þjóðir heims gert slíkt hið sama og þar á meðal Danir hvers leiðbeiningum utanríkisráðuneytið hérlendis fylgir.
Sé leitað að Egyptalandi á vef utanríkisráðuneytisins í dag, hvergi er sérstakur ferðaviðvörunarvefur, fæst ekki séð annað en viðvörun fyrir allt landið sé enn í gildi. Talað er um ALLT Egyptaland. Nema að norrænu löndin vöruðu aldrei við ferðum til alls Egyptalands. Sólstrandarbæirnir við Rauðahaf voru alltaf á undanþágu og eru enn.
Fyrr í vikunni tilkynntu líka ráðuneyti Belgíu og Hollands að ferðaviðvörunum til Egyptalands hefði verið aflétt og líklegt er að aðrar þjóðir fylgi í kjölfarið strax í næstu viku.
Það er kannski illa sagt en það er reyndar fyrir okkur vesturlandabúa eitt jákvætt við þær blóðugu óeirðir sem í landinu geysuðu. Ferðaiðnaður landsins hrundi til grunna en sá er æði mikilvægur og nú, þori fólk að stíga skrefið, er hægt að finna safaríkari ferðir til Rauðahafsins en raunin hefur verið lengi.








