„En hér kemur eitt sem ekki allir vita og er sérlega áhugavert fyrir alvöru sjoppara: Í klukkustundar lestarferð norður af borginni situr Woodbury Commons Outlet ­verslunarmiðstöð­in.“

Tanger

Önnur tveggja afar góðra afsláttarverslanakjarna sem finnast í New York og nágrenni er Tanger

Svo stendur í Viðskiptablaðinu sem út kom í vikunni en þar er fjallað um skemmtilegar borgarferðir og talað um að enginn þurfi nú að hanga heila viku til að komast í fíling í New York. Góð helgi nægi til þess arna.

Fararheill er reyndar ekki sammála því en það er tómt bull að engir viti af helstu og bestu afsláttarverslunum í og við New York borg. Það dekkaði Fararheill fyrir margt löngu og veit ritstjórn um nokkurn fjölda fólks sem nýtt hefur sér þær upplýsingar.

En í guðanna bænum dveljið lengur en helgi. Sá tími dugar varla til að skipta um skoðun í þeirri borg og fargjaldið kostar hand- og fótlegg.