Það á svo sem ekki að koma á óvart að lággjaldaflugfélagið easyJet sé ennþá að bjóða lægri fargjöld en Icelandair aðra leiðina til Manchester næsta sumarið en munurinn er ekki svo mikill.

Enn er komist aðra leiðina til Manchester fyrir tólf þúsund krónur rúmar í júnímánuði. Mynd Richard Heyes
Fararheill leitaði að lægsta fargjaldi aðra leiðina frá Keflavík til Manchester í júní, júlí og ágúst bæði hjá Icelandair og easyJet og reynist breska flugfélagið bjóða betur alla mánuðina eins og sjá má á töflunni hér að neðan.
Munurinn reyndar ekki eins mikill og fólk gæti ímyndað sér en fyrir utan júní skilur ekki mikið á milli. Tekið skal fram að ein taska var tekin með í reikninginn í tilfelli easyJet og einnig bætt við aukakostnaði sem á fellur greiði fólk með erlendu kreditkorti.
Ágætt er að leggja á minnið að frá Manchester eins og frá öðrum áfangastöðum sínum er easyJet að bjóða flug til ýmissa fyrirtaks staða á borð við Antalya, Bilbao, Malaga, Mallorca, Feneyja og meira að segja beint flug til Sharm el Sheikh við Rauðahafið svo fáir séu nefndir. Óvitlaus staður sé fólk að skoða slíkar ferðir.
Samanburður gerður kl 13 þann 10 mars 2014. Evrum breytt í krónur miðað við miðgengi dagsins. Verð breytast nokkuð ört og ber að hafa það í huga.







