Reyndar gætu dagsetningar verið betri en maður fær ekki allt sem maður vill. Í boði er nú frá Bretlandi vikuferð með öllu inniföldu til eyjarinnar Tobago í Karíbahafi í júnímánuði fyrir litlar 125 þúsund krónur á mann.

Skógi vaxin Tobago er óvitlaust að sækja heim á tombóluverði. Mynd keith_roch

Skógi vaxin Tobago er óvitlaust að sækja heim á tombóluverði. Mynd keith_roch

Tobago er alla jafna ekki alveg á dagskrá ferðafólks en eyjan sú er nánast uppi í flæðarmáli Venesúela í Suður Ameríku og því spottakorn að fara. Sem gerir verðið á ferð Golden Holidays enn merkilegra en þar er verið að bjóða vikuferð frá Gatwick í London á nokkrum dagsetningum í júní. Alveg sama hvernig það er til skorið; 250 þúsund krónur fyrir hjón eða par í viku í Karíbahafi er barasta efni í næsta Áramótaskaup. Jafnvel með viðbótarkostnaði til og frá Gatwick.

Vissulega er ekki um fimm stjörnu hótel að ræða í þessu tilviki heldur þriggja stjörnu en það fær ágæta dóma og er vel staðsett á þessari fallegu litlu eyju sem er nokkuð undan eyjunni Trinidad en hún og Tobago er eitt og sama landið.

Hægt er að bóka þessa ferð á öðrum dagsetningum fyrir aðeins hærra verð. Nánar hér.