Myndir þú greiða tæpar þrjár milljónir króna fyrir góða utanlandsferð fyrir þig og makann? Slík ferð er nú í boði hjá ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar.

Ár og dagur er síðan íslensk ferðaskrifstofa bauð upp á tæplega þriggja milljóna króna utanlandsferð síðast.

Ár og dagur er síðan íslensk ferðaskrifstofa bauð upp á tæplega þriggja milljóna króna utanlandsferð síðast.

Hún er ekkert af verri endanum ferðin sú sem Úrval Útsýn býður næsta október og stendur yfir í 28 daga og dvalið í þremur löndum á leiðinni. Um er að ræða reisu til Ástralíu og Nýja Sjálands með stoppi í Dúbai á heimleiðinni fyrir utan millilendingu í London fram og aftur. Guðrún Bergmann er fararstjóri í ferðinni en þess utan innfæddir leiðsögumenn einnig með í för.

Ekkert skal sett út á ferðina sjálfa. Öðru nær því hið besta mál að bjóða fjölbreyttar ferðir og þessi er það sannarlega. Farið er víða og margir frábærir staðir heimsóttir. Nægir að nefna Cairns, Sidney, Melbourne, Alice Springs, Tasmaníu, Christchurch og Auckland en nánar má fræðast um ferðina hér.

En verðmiðinn er feitur og fjarri á allra færi. Verð á parið er 2.876.300 krónur og detti einhverjum makalausum að smella sér með greiðir sá 1.750.360 krónur. Hver einasti dagur í ferðinni kostar einstaklinginn rúmar 62 þúsund krónur. Minnir aðeins á árið 2007 einhverra hluta vegna.