Sem fyrr er enginn að gæta hagsmuna neytenda á Íslandi og söluaðilar komast upp með innantóma þvælu aftur og aftur og aftur og aftur. Vorum við búin að segja aftur?

Tilboð sem engin innistæða er fyrir hjá Plúsferðum.

Tilboð sem engin innistæða er fyrir hjá Plúsferðum.

Ferðaskrifstofan Plúsferðir, hluti af ferðaskrifstofuveldi Pálma Haraldssonar, auglýsir í dag „sjóðheita spænska daga“ og af því tilefni er sértilboð á stöku Spánarferðum næsta sumar. Allra lægsta tilboð Plúsferða er ferð til Almeria og þar gist sjö nætur á Arena Center og verðmiðinn aðeins 79.900 krónur á mann miðað við fjögurra manna fjölskyldu. Dágott tilboð jafnvel þó miðað sé við fjóra en heildarverð fjölskyldunnar fyrir pakkann því 319.600 krónur alls.

Í auglýsingu í Fréttablaðinu er sagt að tilboð þetta gildi fram til 17. mars.

Sem er rangt!

Fyrir utan að þetta er nákvæmlega sama tilboð og auglýst var síðastliðinn þriðjudag sem sérstakur „sólarsprettur“ og að fólk hefði aðeins 24 stundir til að tryggja sér dvöl í Arena Center á þessu lágmarksverði þá er umrætt tilboð alls ekki í boði á vef ferðaskrifstofunnar.

pl6

Fararheill leitaði að fluginu þann 17. og gistingu fyrir tvo fullorðna og tvö börn og niðurstaðan, þremur stundum eftir auglýsingu í útbreiddu dagblaði, að ekkert slíkt er í boði. Sorrí Stína bara.