Fyrir utan að vera rænd er sennilega ekki margt verra en að veikjast í fríi erlendis. Það getur verið hreinasta martröð sé um ævintýragjarnt fólk að ræða sem flakkar um fáfarna staði víðs fjarri sjúkrahúsum eða læknum en jafnvel í nágrannalöndunum er það bæði töluvert vesen og verður sífellt dýrara.

Enginn vill stytta fríið sitt á þessum stað.
Breska þingið ræðir nú, sem dæmi, hvort taka eigi upp sérstakt gjald þurfi ferðafólk á læknisaðstoð að ræða. Gildir einu hvort um er að ræða heimsókn til læknis vegna kvefs eða bráðatilfelli vegna botnlangabólgu að fái stjórnvöld sínu fram fær enginn neina þjónustu nema greiða fyrir fyrirfram.
Gjaldið er ótiltekið í frumvarpi þessa efnis þegar þetta er skrifað en það verður væntanlega svipað og innflytjendum verður gert að greiða sem þýðir 42 þúsund króna eingreiðslu áður en hægt verður að fá bót meina sinna. Þessi eingreiðsla kemur ofan á hefðbundið komugjald á heilsugæslustöðvum og bráðadeildum í Bretlandi ef af verður.
Þá fjölgar mjög kvörtunum þess efnis að tilteknir læknar og sjúkrahús á Spáni taki ekki lengur mark á samevrópskri tryggingu en slík trygging þýðir að allir íbúar álfunnar eiga skýlausan sama rétt og innfæddir á læknisaðstoð ef í nauðir rekur. Fræðilega á að nægja að sýna slíkt skírteini en blöð erlendis hafa fjallað um sífellt fleiri dæmi þar sem sjúklingum er gert að greiða fyrir meðferð áður en hún hefst og gert að sækja rétt sinn síðar.
Þetta tengist afar bágu fjárhagsástandi í landinu en fjórðungi heilbrigðisstarfsfólks hefur verið sagt upp störfum þar síðan árið 2008 og sér ekki fyrir endann á slíku ennþá. Það vita líka allir að fárveikur einstaklingur er ekki eyða tíma að rífast eða röfla meðan viðkomandi engist um af kvölum heldur skrifar undir það sem þarf að skrifa undir.
Fararheill hvetur fólk til að kynna sér Í ÞAULA allar tryggingar sem bæði heimilistrygging og kortatrygging veitir á ferðum erlendis. Þú vilt ekki frétta rúmliggjandi á sjúkrahúsi erlendis að tryggingin þín dekkar ekki uppskurðinn sem þú þarft bráðnauðsynlega að komast í sem fyrst.







