Að okkar mati er allra besti jólaundirbúningurinn sá að liggja eins og skata undir heitri sól og súpa kokteila. Þú ert kannski meira fyrir að hlaupa milli verslana í kulda og myrkri, maxa kortið og stressa þig á jólamatnum.

Ljúft loftslag á Ensku ströndinni í desember sem aðra mánuði

Ljúft loftslag á Ensku ströndinni í desember sem aðra mánuði

Þú um það. Þið hin sem eruð svona nokkuð sammála okkur hjá Fararheill gætuð gert vitlausari hlut en kíkja á ferðatilboð Heimsferða hér. Þar gætir ýmissa grasa og meðal annars allnokkrar ágætar desemberferðir til bæði Tenerife og Kanarí. Margar þeirra á hreint ágætu verði miðað við allt og allt.

Eins og sautján daga túr til Kanarí þar sem dvalið er á Roque Nublo íbúðahótelinu á Playa del Inglés fyrir svo lítið sem 113.900 krónur á haus miðað við tvo saman. Samtalan á par því 227.800 krónur. Reyndar án fæðis en eins og vant Kanarífólk veit þá kostar skid og ingenting að borða hér og það því varla vandamál. Þá er þetta íbúðahótel svo aðstaða til að elda sjálf ef sá gállinn er á fólki. Sannarlega flott tilboð og hægt að punga út hærri upphæð vilji fólk meiri þjónustu.

Svo má ekki gleyma að verslanir hér selja hluti á töluvert lægra verði en verslanir heima á Fróni. Það má því líka sjoppa nokkrar gjafir svona milli drykkja og koma heim aldeilis búin að öllu.