Fæðingin var erfið en nú loks er barnið komið í heiminn. Flugfélagið Delta hefur bætt við áætlunarflugi milli Íslands og Minneapolis í Bandaríkjunum.

Delta eykur framboð til Bandaríkjanna á næsta ári
Við segjum erfið fæðing sökum þess að þetta hefur verið í burðarliðnum í tæp tvö ár hjá Delta. Þetta er smart múv hjá flugfélaginu ef við slettum aðeins. Fyrir okkur fær Icelandair nú samkeppni á þessari flugleið svo við komumst á lægra verði í Mall of America.
Fyrir Kanann er þetta jákvætt því fjöldinn allur af fólki í þessum hluta Bandaríkjanna á ættir að rekja til Norðurlandanna og þegar fólk eldist eykst jafnt og þétt áhugi fólks á ættum og tengslum. Það er líka sama fólkið og á peninga aflögu og Minnesota og nágrenni eru meðal ríkari fylkja Bandaríkjanna almennt.
Samkeppni hið allra besta mál í öllum tilvikum. Jafnvel þó áætlunarflug Delta til og frá New York hafi nú ekki beint verið í boði á því sem hægt væri að kalla gott verð.







