„Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðum til Sharm el Sheikh og til annarra áfangastaða á Sínai-skaga vegna ótryggs ástands þar. Ráðuneytið hvetur fólk ennfremur að fylgjast með ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, t.d. Norðurlandanna.“

Stórhættulegur áfangastaður?

Stórhættulegur áfangastaður?

Svo hljómar ferðaviðvörun sem birt hefur verið á vef utanríkisráðuneytisins þennan daginn. Gott og blessað að hafa áhyggjur af lífi og limum Íslendinga á ferðalögum en kannski daprara að birta slíkt fleiri sólarhringum á eftir öðrum. Þá er viðvörunin afskaplega kjánalega orðuð. Hver á annars „nauðsynlegt“ erindi á sólardvalarstað við Rauðahafið?

Það er engu að síður lykt af hysteríu varðandi ferðir til Sharm el Sheikh. Það á upptök sín hjá Bretum hvers stjórnvöld virðast hafa á stefnuskránni eins og Bandaríkjamenn að vekja hræðslu hjá sínu fólki við hvert tækifæri.

Til að sýna fram á ruglið ætti að nægja að kíkja á kortið hér að neðan. Þar gefur að líta þau svæði sem Bretar telja mjög varasöm til ferðalaga sökum hryðjuverkahættu. Frakkland og Spánn stórhættulegir staðir. Tyrkland eldrautt og hættulegt og ekki er laust við hættu í Þýskalandi og á Ítalíu.

Taki fólk ferðaviðvaranir Breta alvarlega er hætt við að enginn ferðist neitt.

Taki fólk ferðaviðvaranir Breta alvarlega er hætt við að enginn ferðist neitt.

Fólk sem tekur þetta bókstaflega ætti bara að harðlæsa sig heima og horfa á sjónvarp. Þar með hafa líka þessir örfáu hryðjuverkamenn sem usla valda unnið miklu stærri sigur en ella.

Það er kannski vitlegra að skoða hvað aðrar skynsamari þjóðir segja sínu fólki. Kanadastjórn mælir ekki með ferðum til Egyptalands en sú viðvörun nær EKKI til Sharm el Sheikh, Hurghada eða annarra sólarstaða við Rauðahafið. Þar skal fólk aðeins hafa varann á sér.

Og hvað finnst stjórnvöldum í Hollandi? Þar er sama uppi á teningnum og í Kanada. Varað sterklega við ferðalögum á Sínai skaganum en við Rauðahafið er hætta talin lítil.

Þessi ráð hljóma ívið skynsamari en það sem frá Bretum kemur. Engin þjóð að frátöldum Rússum og Bretum hafa lokað fyrir almenna flugumferð véla sinna til og frá Sharm el Sheikh. Hvernig ætli standi á því?

Þess utan er fólk ekki heimskt. Velflestir hafa aukinn vara á sér á ferðalögum almennt og þeir eru fáir sem ekki hafa heyrt af hugsanlegu hryðjuverkinu á Sínai-skaga. Í þriðja lagi eru ferðir á sjálfum skaganum nánast engar þess utan. Engir ferðamannastaðir finnast í þeirri eyðimörk sem skaginn sjálfur er.

Síðast en ekki síst eru þess fá dæmi að eldingu lýsi niður tvívegis á sama staðnum. Ofstækisfólk er heldur ekki vitlaust. Það liggur í augum uppi að öryggi er hert margfalt á þeim stöðum þar sem grunur leikur á hryðjuverkum. Miklu einfaldara að skoða aðra staði.

Að þessu sögðu má alveg hafa í huga að verð á pakkaferðum frá Evrópu til Sharm el Sheik hefur eðlilega hríðlækkað síðustu sólarhringa. Við höfum rekist á tveggja vikna pakka með öllu inniföldu niður í 60 þúsund krónur á mann. En ekki svo að við séum að mæla með slíku. Bara benda á staðreyndir.