Ekki svo að skilja að ritstjórn Fararheill hafi dvalið á hverri einustu eyju Karíbahafs en af þeim sjö eða svo sem við höfum reynslu af er það Jamaíka sem alltaf stendur pínulítið upp úr. Innan tíðar er komist þangað tiltölulega ódýrt gegnum Noreg.

Ætlar þú að kvarta eitthvað yfir þessu? Þá máttu bara sitja heima meðan við hin dúllum okkur.

Ætlar þú að kvarta eitthvað yfir þessu? Þá máttu bara sitja heima meðan við hin dúllum okkur.

Ferðaskrifstofan Ving mun hefja reglubundið flug til Jamaíka í lok þessa mánaðar og er það fyrsta sinni sem Norðmönnum gefst færi á beinu flugi til Jamaíka. Þar um marga flotta áfangastaði að velja: Montego Bay, Runaway Bay og Negril svo fáir séu nefndir.

Við nefnum þetta svona ef Karíbahafið heillar því svo vel vill til að flug héðan til Oslóar þaðan sem flogið er til Jamaíka fæst oft á fjandi fínu verði. Stundum lægra verði en flug héðan til London.

Sjálfsagt að kíkja á vef Ving og skoða málið. Fljótt á litið eru Norðmennirnir búnir að fylla fyrstu vélar sínar til fulls en samkvæmt vef Ving á að vera hægt að finna flug plús gistingu í tvær vikur með öllu inniföldu allt niður í 210 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Það ekki slæmur díll en við þurfum auðvitað að bæta við fargjaldinu til og frá Noregi.

Vefur Ving hér.