Skip to main content

Hólímóli hvað þjónustan hjá Icelandair er fyrir neðan hellur. Enn einn daginn fellir flugfélagið niður áætlunarflug og hvergi nokkurs staðar að finna eina einustu skýringu og hvað þá afsökunarbeiðni.

Verulega óljóst hvað er í gangi hjá Icelandair. Flugfélagið er farið að fella niður flugferðir sísona nánast á daglegum basa og hirðir ekki hætishót um að gefa tilkynningar um hvers vegna. Ekkert er að finna á vef Icelandair um niðurfellingu flugs. Ekkert finnst á fréttaveitum um lokun Glasgow flugvallar eða sérstakar tafir þar. Samt var flugi Icelandair frá Glasgow til Keflavíkur þennan daginn slátrað án þess að blikka auga.

Það virðist næstum eins og Icelandair virðist fella niður flug að gamni sínu…

Klárlega flugfélag sem hefur eitthvað að fela miðað við leyndina því ekki vantar tilkynningarnar á vef flugfélagsins þegar flugi seinkar fram úr hófi.