Slá má föstu að einhverjir lesendur okkar fussa og frussa þegar talið berst að Albaníu. Við lengi bent á þann kost sem frábæran til að njóta sólar og dúllerís án þess að greiða fúlgur fyrir en sumum finnst landið helst til mikið fast á miðöldum og telja engar líkur á að nokkur geti svo mikið sem brosað á þeim slóðum.
Oft erfitt að snúa afturhaldsseggjum á sitt band en við ætlum að reyna og það með nokkrum myndum:
[orbit]Ekkert svona áberandi hallærislegt við náttúru landsins af þessum myndum af dæma. Og engum skyldi detta í hug að strendur Albaníu séu eitthvað lakari að gæðum en í Grikklandi, Króatíu eða Ítalíu. Sama hafið, sami sandur en öllu færri traðkað niður fæti í Albaníu en á þeim fyrrtöldu.
En mikil náttúrufegurð er jafnvel ekki helsti sölupunkturinn fyrir mörg okkar. Öllu frekar sú staðreynd að sumardvöl hér um slóðir er ennþá þetta 50 til 60 prósent ódýrara en á ströndum vinsælli landa. Ekki bara gisting og flug heldur og verðlag í landinu líka 🙂
Ástæða þess að við minnumst á þetta nú er að við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir síðustu misserin um hvernig sé auðveldast eða ódýrast að komast til Albaníu.
Það eru fjölmargar leiðir þori fólk að treysta á sjálft sig. Einfaldasta leiðin er líklega að fljúga til Ítalíu. Illu heilli gafst Wow Air upp á Róm en Primera Air flýgur enn þráðbeint til Trieste. Þaðan er annaðhvort hægt að taka bílaleigubíl eða bara næstu rútu og dúndrast niður Balkanskagann til Albaníu. Sé fólk statt sunnar á Ítalíu eru hæg heimatök að taka ferju beint yfir.
En við rákumst líka á forvitnilegan túr norsku ferðaskrifstofunnar Apollo fyrir skömmu. Apollo býður Norðmönnum ferðapakka til Albaníu beint frá Osló í allt sumar og þar má finna tveggja vikna pakka á hreint ágætum hótelum niður í rúmlega 200 þúsund krónur fyrir hjón eða par. Það einn stór brandari auðvitað en við þurfum að koma okkur til Osló og sá kostnaður bætist auðvitað ofan á. Engu að síður vert skoðunar fyrir þá sem vilja heimsækja Albaníu áður en það breytist í næsta Grikkland. Meira um ferð Apollo hér.
Drífa sig. Lífið er ekkert að lengjast 🙂







