Ferðamálayfirvöld í Berlín hafa undan engu að kvarta. Ferðamannafjöldi til borgarinnar eykst mikið ár frá ári og eitthvað þarf nú allt fólkið að gera. Þá er hugmynd að byggja enn eina verslunarmiðstöðina og þá ágætt að hafa hana sem allra stærsta líka.

Þetta bákm er hin nýja Mall of Berlin. Mynd Michel_br
Hugmyndin varð að veruleika fyrir skömmu þegar verslunarmiðstöðin Mall of Berlin opnaði formlega en þar má finna verslunarrými í hundrað þúsund fermetrum sem er sami fermetrafjöldi og Landspítalinn og Borgarspítalinn samtals. Það þó ekki nóg því þegar er verið að vinna að því að stækka báknið um rúma 30 þúsund fermetra til viðbótar. Hún er svo stór að borgaryfirvöld tala ekki um nýja verslunarmiðstöð heldur nýtt hverfi.
Verslunarglaðir hugsa sér eflaust gott til glóðar en hér hangir þó aðeins á spýtu. Nefninlega sú staðreynd að þessi miðstöð er sérstaklega byggð með ferðamenn í huga. Og enga auma krónueigendur frá Íslandi heldur vellauðuga Sádí-Araba og enn ríkari Kínverja. Verðlag er sem sagt hærra almennt en gerist og gengur í öðrum verslunarmiðstöðvum borgarinnar og meira en venjulega af lúxusverslunum. En góðu heilli er Mall of Berlin aðeins ein af tæplega 40 verslunarmiðstöðvum í borginni svo það má alltaf leita annað ef þörf krefur.
Mall of Berlin er við Leipziger Platz sem er í fimm mínútna fjarlægð frá Potzdamer Platz fyrir þá sem borgina þekkja. Hinir þurfa engar áhyggjur að hafa. Hún er nokkuð auðfundin sökum stærðar. Heimasíðan hér ef fólk vill kynna sér verslanir og kostakjör.







