Fátt er svo með öllu illt. Jafnvel í Norður Kóreu eru tekin örsmá framfararskref annars lagið og eitt slíkt tekið fyrr í þessum mánuði þegar opinber vefur ferðamálaráðs landsins var opnaður.

Það getur verið forvitnilegt að skoða sig um í Norður Kóreu. Mynd Roman Harak

Það getur verið forvitnilegt að skoða sig um í Norður Kóreu. Mynd Roman Harak

Sem verður að flokkast sem mikil tíðindi enda gefur það til kynna að leiðtogi landsins hafi nú kannski ekkert á móti nokkrum ferðamönnum jafnvel þó þeim verði að fylgja við hvert fótmál og geti ekki um frjálst höfuð strokið meðan á ferðinni stendur. Það er allavega atvinnuskapandi og gjaldeyrir fæst inn í landið.

Vefurinn umræddi er kjaftfullur af upplýsingum jafnvel þó útlitið fái engin verðlaun. Nokkur myndbönd hægt að skoða og fjöldi ritskoðaðra mynda líka. Ekkert hræðilegt nema kannski fyrir þá sök að vefurinn er aðeins á kóresku og kínversku enn sem komið er.

Vefurinn hér.