Ritstjórn Fararheill þreytist seint á að básúna fábreytni í ferðamöguleikum landans og skamma ferðskrifstofurnar íslensku og flugfélögin fyrir. Það er nefninlega svo að sökum þess hve mikið umstang fylgir því að ferðast á eigin spýtur út fyrir þann ramma sem okkur er boðið upp á gefast margir upp eftir eina, tvær tilraunir og panta bara næstu ferð í beinu flugi.
Hvergi sést þetta glöggar en þegar skoðaðir eru listar leitarrisans Google yfir þá staði sem hinar ýmsu þjóðir sýna mestan áhuga á að heimsækja en utan um slíkar upplýsingar heldur Google og birtir um áramót ár hvert. Þar má sjá hvaða lönd, borgir eða aðra staði fólk í hinum ýmsu löndum leituðu mest að gegnum leitarvélina með ferðalög í huga.
Fararheill birtir hér að neðan niðurstöður í fjórum löndum heims og þar á meðal frá Íslandi fyrir árið 2012. Íslenski listinn, sem fenginn er frá Dohop en ekki Google, sýnir að fyrir utan Bangkok, Róm og Belgrad fara Íslendingar aðeins þangað sem í boði er að fara í beinu flugi og án mikils umstangs meðan listi Norðmanna til samanburðar sýnir mikið mun fjölbreyttnari staði sem ekki voru endilega í boði þráðbeint. Það þó vitaskuld er afleiðing af meira framboði og fjölbreytni. Athyglisvert þó að aðeins einn staður á topp tíu leitarlista Íslendinga kemst á topp tíu Norðmanna. Það er Spánn. Að öðru leyti eru Norðmenn að ferðast allt annað.
Gott er að hafa í huga í þessu sambandi forna speki úr Hávamálum: Sá einn veit er víða ratar.
* Hér er miðað við árslista ársins 2012 en litlar breytingar eru almennt ára á milli







