Moskítóflugur eru hvimleiður fjandi eins og allir ferðavanir vita. Sumar þeirra hættulegri en aðrar ef þær bera með sér vírus eða annan slíkan fjanda. Nú gerir ný óværa vart við sig í Suður-, og Mið-Ameríku og hefur fundist á karabísku eyjunum líka.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum.

Óværan atarna er vírusinn Zika og þeim vírus dreifir nú sérstök tegund moskítóflugna um allt Karíbahaf eftir því sem fram kemur hjá Washington Post.

Eins og annar sá fjandi sem moskítóflugur geta borið milli manna getur þessi vírus haft slæmar afleiðingar. Höfuðverkir , svimi, útbrot, niðurgangur, uppköst og almennt þróttleysi þeirra sem fyrir barðinu verða. En öllu verri afleiðingar getur vírusinn haft fyrir ófrískar konur. Zika-vírusinn getur nefninlega valdið heiladauða fósturs á meðgöngu.

Þetta ágætt að hafa í huga ef ferðast á um karabíska hafið eða lönd umhverfis það. En þar með er ekki sagt að hættan sé frá. Þetta er nefninlega sama tegund flugu og olli talsverðum usla á eynni Madeira árið 2013 þar sem leggja þurfti yfir hundrað manns á sjúkrahús. Um tíma var óttast að vargurinn næði fótfestu á Kanaríeyjum líka en varrúðarráðstafanir þar virðast hafa dugað hingað til.