Nýtt ár, vonir og þrár. En ekki dettur flugfélaginu Icelandair í hug að bæta þjónustu sína.

Leitið og þér munuð finna sagði Jesús fyrir rúmum tvö þúsund árum. Icelandair fylgir þeirri stefnu enn þann dag í dag.
Enn eitt árið þarf fólk sem vill eiga viðskipti við flugfélagið að eyða drjúgum tíma að leita uppi hagstæðustu auglýstu fargjöld flugfélagsins. Fargjöld sem eru auglýst upp í rjáfur á hinum ýmsu miðlum og á vef flugfélagsins. Þið vitið, þessar „verð frá…“ auglýsingar.
En vei þeim sem ekki vill sitja heila kvöldstund við tölvuna og fletta síðu eftir síðu á vef Icelandair. Vef sem aðeins sýnir rúma viku eða tvær í senn.
Kannski það sé líka tilgangurinn. Láta fólk hafa nógu mikið fyrir, eyða tíma sínum til þess að gefast svo upp og kaupa dýrara flug á endanum. Þetta er jú ekki nýtt af nálinni. Við fjölluðum um sama hlut sumarið 2014.
En ólíkt milljarðafyrirtækinu Icelandair veit Fararheill hvað orðið þjónusta þýðir og felur í sér. Við leituðum því uppi á vef Icelandair hvenær nákvæmlega má finna lægstu fargjöld flugfélagsins til helstu áfangastaða svo þú þurfir ekki að eyða næstu vikum til þess arna.
ORLANDO / Auglýst lægsta verð aðra leið: 36.900 krónur
Ekki gera ykkur vonir um svo lágt fargjald til Orlandó næstu mánuðina. Þvert á móti þarf að fletta alla leið til nóvember til að rekast á þessi fargjöld. Nánar tiltekið 1. nóvember. Sama verð finnst á allnokkrum dagsetningum þann mánuð og aðeins inn í desember.
BILLUND / Auglýst lægsta verð aðra leið: 16.500 krónur.
Til að njóta þessa fargjalds þarf að fljúga í maí. Nánar tiltekið 6. maí eða á sex öðrum dagsetningum þann mánuðinn. Svo þarf aldeilis að fletta eða alla leið til 10. október til að finna flug á þessu verði og þann mánuð finnst þetta fargjald á öðrum fimm dagsetningum og ekki söguna meir.
BOSTON / Auglýst lægsta verð aðra leið: 28.600 krónur.
Hér eru flettingarnar ekki yfirþyrmandi. Þetta fargjald finnst þann 6. apríl og á fjórum öðrum dagsetningum þann mánuð. Líka á nokkrum dagsetningum í maí en síðan ekki aftur fyrr en 1. október og á allmörgum dagsetningum þann mánuð og í nóvember og byrjun desember.
GENF / Auglýst lægsta verð aðra leið: 23.600 krónur.
Til þessar ágætu borgar kemst fólk fyrir ofangreint verð fyrst þann 10.maí og á öðrum sex dagsetningum þann mánuð. Ekki skal koma á óvart að svo þarf að fletta til 1. október til að komast í sama fargjald aftur og nokkrum sinnum í boði eftir það sama mánuð en svo búið.
MONTREAL / Auglýst lægsta verð aðra leið 28.700 krónur.
Þetta fargjald dettur í hús þann 19. maí fyrst og nokkur skipti í kjölfar þess sama mánuð. En ekkert eftir það til áramóta.
SEATTLE / Auglýst lægsta verð aðra leið 42.700 krónur.
Hér fyrst rekumst við á þá merkilegu staðreynd, sem við höfum áður tæpt á, að það finnst flug á lægra verði en lægsta auglýsta fargjald. Strax í byrjun mars kemst fólk aðra leið niður í 39. 800 krónur á fimm dagsetningum. Aftur um miðjan apríl og út maí á nokkrum dagsetningum. Í júní rekumst við á fargjöld niður í 40.700 og aftur í byrjun september. Hvergi finnst þó fargjald á 42.700 krónur.
CHICAGO / Auglýst lægsta verð aðra leið 39.600 krónur.
Einn nýjasti áfangastaður Icelandair er hin lítríka Chicago. Hér aftur finnast lægri fargjöld á bókunarvél flugfélagsins en auglýst er og það strax í apríl. Ekki mikið eða 38.800 krónur en samt. Auglýst fargjald finnst þó loks seinnihluta ágústmánaðar og í byrjun september og svo á allnokkrum dagsetningum í nóvember og desember.
MADRÍD / Auglýst lægsta verð aðra leið 19.900 krónur.
Hér um klár vörusvik að ræða hjá risafyrirtækinu. Þetta fargjald finnst hvergi á bókunarvél flugfélagsins út árið. Það næsta er 20.700 krónur á fimm dagsetningum seint í ágúst og byrjun september en þá er það upptalið.
VANCOUVER / Auglýst lægsta verð aðra leið 35.400 krónur.
Fara þarf alla leið til 11. október til að finna þetta fargjald og það finnst einungis á tveimur dagsetningum alls allt árið og í bæði skipti í októbermánuði.
*Úttekt gerð milli 20:30 og 20:50 þann 15. janúar 2016. Önnur leið með sköttum og gjöldum.







