Það er blind, heyrnarlaus og örlítið skakklappa manneskja sem ekki hefur séð auglýsingaherferð Icelandair síðustu vikur og mánuði. Fljúgðu vel heitir sú herferð og þar kemur ekki fram að flugfélagið er að fljúga einhverjum elstu vélum allra flugfélaga Evrópu.

Flottar vélar en gamlar og þreyttar. Mynd Woodys Aeroimages
Þar kemur hins vegar fram lægsta verð á flugi til áfangastaða flugfélagsins og þar alltaf miðað við verð aðra leið. Eins og Íslendingar séu í hrönnum að yfirgefa landið með one-way ticket. Eðlilegra væri og góð þjónusta að auglýsa lágmarksverð fram og aftur. Það hins vegar stemmir ekki við markaðssetningu 101. Betra að auglýsa ódýrt út og svo þarf að veðsetja húsið til að komast heim aftur.
Enn verra að Icelandair fer fram á að þú finnir sjálf/-ur þessi lægstu fargjöld. Við berum svo litla virðingu fyrir hugsanlegum viðskiptavinum að í stað þess að sýna þeim strax á hvaða dagsetningum við bjóðum lægsta verð þá verður lýðurinn að eyða tíma til að leita. Þessi lýður hefur ekkert betra að gera hvort sem er…
Ólíkt risaflugfélaginu með hundruð starfsmanna telur litli ferðavefurinn Fararheill, með enga starfsmenn, ekki eftir sér að sýna fólki nákvæmlega hvar og hvenær þessi ódýrustu fargjöld Icelandair er að finna. Sumir kynnu að kalla það óþarfa en við köllum það sjálfsagða þjónustu. Að setja mann í þjónustu hjá Icelandair minnkar milljarða arðköku hluthafa Icelandair um nokkra þúsundkalla og enginn vill það.
* Miðað við lægstu fargjöld á vef Icelandair þann 29. júlí 2015 klukkan 20.00
♦ EDMONTON: Auglýst lægsta verð er 36.900 krónur.
Merkilegt nokk finnst þetta verð alls ekki marga mánuði fram í tímann. Hins vegar finnast fargjöld á 36.550 krónur frá og með 9. október og reglulega eftir það.
♦ MÜNCHEN: Auglýst lægsta verð er 19.900 krónur.
Þetta fargjald finnst ekki. Hins vegar finnast fargjöld aðra leiðina niður í 19.855 krónur frá og með 5. október og á fjölmörgum dagsetningum eftir það. Engin tilviljun að verðið snarlækkar um leið og Októberfest hátíðinni lýkur.
♦ STOKKHÓLMUR: Auglýst lægsta verð 18.500 krónur.
Aftur þarf að fletta nokkra mánuði fram í tímann til að finna eitthvað í líkingu við auglýst lægsta verð. Fyrst þann 8. október dettur inn fargjald aðra leiðina á 18.455 krónur og töluvert á sama verð í kjölfarið.
♦ MÍLANÓ: Auglýst lægsta verð 25.400 krónur.
Hér er eitthvað skringilegt á ferð sem Neytendastofa ætti kannski að kíkja á. Nema það lið er of önnum kafið að kanna verðmerkingar í Súgandafirði og Hrísey til að gera það. Við leituðum fram til apríl á næsta ári. Ekkert fargjald Icelandair aðra leið til Mílanó finnst á 25.400. Lægsta fargjald sem við fundum: 41.085 krónur.
♦ TORONTO: Auglýst lægsta verð 30.400 krónur.
Hér finnst reyndar fargjald á 30.355 krónur en ekki 30.400. Það fyrst þann 22. október og á mörgum dagsetningum eftir það.
♦ GAUTABORG: Auglýst lægsta verð 18.500 krónur.
Alls ekkert flug finnst aðra leið á 18.500 krónur fram til apríl á næsta ári. Á einni dagsetningu finnst flug niður ú rúmlega 19 þúsund en annars er lægsta verð kringum 26 þúsund.
♦ MINNEAPOLIS: Auglýst lægsta verð 36.300 krónur.
Þetta verð finnst en ekki fyrr en þann 13. október næstkomandi. Allnokkrar dagsetningar eftir það líka.
♦ BILLUND: Auglýst lægsta verð 15.700 krónur.
Þann fimmta október finnst þetta fargjald aðra leiðina. Sama verð aðra leiðina á allmörgum dagsetningum eftir það.
♦ AMSTERDAM: Auglýst lægsta verð 18.500 krónur.
Leita þarf lengi að þessu verði aðra leiðina hjá flugfélaginu. Það finnst þó loks þann 14. nóvember og einu sinni í viku í kjölfarið.
♦ BOSTON: Auglýst lægsta verð 30.000 krónur.
Við leituðum fram til apríl á næsta ári en ekki eitt fargjald kostar sléttar þrjátíu þúsund krónur. Hins vegar finnst far aðra leið út niður í 30.295 krónur í byrjun nóvember. En það er ekki það sama.
♦ VANCOUVER: Auglýst lægsta verð 40.100 krónur.
Fararheill hefur bent lesendum sínum á það áður að það sem Icelandair segir lægsta verð á bókunarvef sínum (merkt bláum lit) er ekki endilega lægsta verð. Það á við um flug aðra leið til Vancouver. Þann 18. október finnum við flug þangað niður í 38.055 krónur. Það er aðeins lægra en auglýst lægsta verð og er engu minni blekking en hitt.
Ólíkt hinu íslenska flugfélagi sem virðist aldrei lenda í vandræðum þrátt fyrir að auglýsa verð sem ekki standast ár eftir ár eftir ár eftir ár, þá er bókunarvél Fararheill allavega eitt hundrað prósent. Þar færðu gistingu á lægsta mögulega verði. PUNKTUR.







