Ekki er allt svo með öllu illt. Flugfélagið Icelandair, hið sama og tekur heilan mánuð til að leysa úr vandamálum flestra viðskiptavina, sýnir allt í einu stórmerkilegan lit.

Getur þetta staðist??? Skjáskot

Getur þetta staðist??? Skjáskot

Fararheill rakst á þetta (sjá skjáskot) á fésbókarvef flugfélagsins og kom spænskt fyrir sjónir. Icelandair ekki í fyrstu deild með góða þjónustu og hefur ekki verið um áraraðir. Sérstaklega ekki eftir að búið er að greiða farmiðann. Fjórða deild nær lagi.

En svo bregðast krosstré. Í tilfelli bandarískra hjóna sem misstu af tengiflugi frá Keflavík nýlega vegna tveggja stunda seinkunar í Bandaríkjum brást flugfélagið óðar við. Hjónakornin fengu frítt inni á hóteli eina nótt með mat og alles og þeim skutlað frá flugvelli og til eins og ekkert væri sjálfsagðara. Enda er það reyndar sjálfsagt ef þjónusta er í fyrirrúmi eins og fyrirtækið montar sig af en innistæðan oftast lítil.

Þetta til mikillar eftirbreytni. Þessi viðskiptavinur fer og segir vinum sínum og fjölskyldu frá súperþjónustu og það fólk man það næst þegar ferð til Íslands eða Evrópu er á döfinni. Þetta er markaðssetning sem miðast við fólk og við hér höfum talað um í áraraðir.

Meira af þessu takk og svo megið þið gjarnan borga fólkinu ykkar hærri laun og þá verða allir sáttir 🙂