Græddur er geymdur eyrir segir máltækið en því miður, eins og mörg önnur gömul máltæki, á það ekkert skylt við nútímann. Nægir þar að nefna sparibækur bankanna þar sem ávöxtun er jafn sjaldséð og geirfuglinn. Og þjónustu Wow Air líka.

Forstjórinn og undirmenn í góðu stuði. Ekki það sama hægt að segja um viðskiptavini um helgar. Mynd Isavia
Frá upphafi hefur flugfélagið lokað búllunni klukkan sex stundvíslega á föstudögum og allir farið heim í gott helgarfrí. Sem hefur í för með sér að óánægðir viðskiptavinir koma að lokuðum dyrum (eða símsvara) ef eitthvað bjátar á laugar- og sunnudaga. Þeir verða að gera sér að góðu að bíða til mánudags. Sem er álíka góð þjónusta og þegar stjórn Ríkisútvarpsins ákvað að hafa sjónvarpslausa daga á fimmtudagskvöldum.
Þetta á reyndar alls ekkert skylt við þjónustu. Að flugfélag kveiki á símsvara um helgar svo allir starfsmenn komist í bústað að djamma við Sigga Hlö er barasta ömurleg framkoma. Sérstaklega þegar flugfélagið er að vaxa hraðar en kærasti barnapíunnar er að koma sér burt þegar foreldrarnir mæta fyrr heim en von var á.
Í öllu falli er Wow Air búið að missa þennan viðskiptavin að eilífu og það til Icelandair af öllum stöðum. Hversu dapurt er það Skúli Mogensen…
Honum sennilega sama samt. Sjálfur hluthafi í Icelandair. Win-win fyrir hann. Lús-lús fyrir alla aðra.








