Norska flugfélagið Norwegian hefur um skeið boðið Íslendingum upp á beint flug til dúllulegra staða á mun lægra verði en við höfum áður kynnst. En eins og við greindum frá fyrir nokkru er hart í ári hjá Norsaranum. Nú hefur „hjálp“ borist úr ólíklegustu átt.

Flugfélagið Norwegian komið í var í bili.
Lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur undanfarið blætt peningum eins og Landsbankinn með Icesave í aðdraganda Hrunsins. Þeir norsku ekki haft kapp með forsjá og fyrir vikið voru ýmsir fræðingar farnir að spá flugfélaginu dauðdaga strax á þessu ári eins og við skýrðum frá.
En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst segir máltækið og nú hefur bresk/spænska flugsamsteypan IAG keypt tæplega fimm prósenta hlut í norska lággjaldaflugfélaginu. Það veruleg tíðindi því IAG á mannamáli er samsteypan sem á og rekur British Airways, Iberia, Vueling og Level. Það var sem sagt eitt risafyrirtækjanna á flugmarkaðnum að fjárfesta í Norwegian. Ekki nóg með það heldur íhugar IAG að kaupa upp allt hlutafé þeirra norsku og yfirtaka flugfélagið með manni og mús.
Kaupin þýða að forráðamenn Norwegian geta andað léttar eftir að hafa blætt peningum nánast linnulaust síðustu misserin. Ástæðan tóm græðgi því fáir milljarðamæringar virðast sætta sig við milljarða inn á bankabókum; þeir vilja alltaf meira.
Fyrir okkur meðalplebbana þýðir þetta að við getum áfram áhyggjulaust pungað út fyrir flugmiðum með Norwegian. Sem er plús því flugfélagið er undantekningarlítið að bjóða langlægsta verð á flugi hingað og þangað 🙂







