Hvers vegna í ósköpunum er flugfélagið Icelandair að eyða fúlgum fjár til að sponsa tónleika með Helga Björns? Væri ekki nær að annaðhvort lækka dýr fargjöldin eða spara svo hægt sé að endurnýja fjörgamlan flugflotann sem fyrst?

Gamli karlinn með tónleika og þarf hjálp frá Icelandair af öllum fyrirtækjum. Skjáskot

Margt skrýtið í kýrhausnum og kýrauganu líka. Hinn ágæti tónlistarmaður Helgi Björns að nálgast ellilífeyrisaldur og heldur af því tilefni tónleika. Það fínt mál nema Helgi virðist þurfa töluverða aðstoð við að koma tónleikum á kopp. Víking bjór og Icelandair hlaupa undir bagga með kappanum.

Sá sem þetta skrifar útskrifaðist sem „junior“ í markaðsfræði frá þokkalega virtum bandarískum háskóla hér í denn tíð um svipað leyti og Hubba Bubba var í tísku. Sá getur ekki fyrir sitt litla líf fundið út hvaða notagildi það hefur fyrir Icelandair að eyða hundruðum þúsunda að hjálpa Helga Björns að halda tónleika.

Afar skiljanlegt að Víking bjór sponsi karlinn. Það er jú feit drykkja á staðnum og fyrir vikið fær Víking efalítið einokunaraðstöðu á tónleikunum. En hvern þremilinn fær Icelandair fyrir sponsið? Afar ólíklegt að fjöldi erlendra aðila flykkist til landsins vegna Helga Björns. Ætlar flugfélagið að vera með sölubás á tónleikunum og reyna að plata hálfskakkt fólk til að drífa sig til Anchorage og Halifax? Er þetta bara gúddvill Hunting af því að Helgi Björns er íslenskur klassíker? Þá erum við með leiðinlegar fréttir fyrir Icelandair: öllum er sama.

Að gamni slepptu má Icelandair eyða sínum peningum eins og feitur forstjórinn vill og kýs. Það er að segja ef Icelandair væri einkafyrirtæki.

Það er hins vegar ekki raunin. Fyrirtækið er næstum að meirihluta í eigu lífeyrissjóða landsmanna, mín og þín, og fyrirtækið þegar gert duglega í brækur á mörkuðum. Fargjöldin fokdýr og hjá heimsmetabók Guinness íhuga menn að gefa Icelandair verðlaun fyrir elstu vélar sem enn eru í notkun.

Það er töluvert annað og betra sem flugfélagið á að gera við peningana sína en henda þeim út í hafsauga sísona. Sem þeir eru nákvæmlega að gera með því að sponsa tónleika hingað og þangað.

Út með stjórann. Ekki starfi sínu vaxinn.