Áttatíu prósenta verðmunur er eitthvað sem flest okkar munar um. Þetta er meiri afsláttur en fæst nokkurn tímann á allra bestu útsölum hérlendis. Og þetta er líka mesti verðmunurinn á ódýrasta fargjaldi Wow Air annars vegar og Vueling hins vegar til Barselóna í sumar.

Sem fyrr er annað þessara lággjaldaflugfélaga mun dýrara en hitt. Samsett mynd

Engar fréttir fyrir dygga lesendur okkar gegnum tíðina. Wow Air næstum alltaf að heimta mun fleiri seðla til vinsælla staða en önnur lággjaldaflugfélög sem fljúga sömu leið. En rúmlega 80% verðmunur verður samt að teljast alveg galinn!!!

Við kíktum á lægsta verð fram og aftur í júní, júlí og ágúst hjá bæði Wow Air og Vueling bæði án alls og svo líka með tösku meðferðis. Í öllum tilvikum var spænska flugfélagið að bjóða lægra verð og oftast mun lægra en Mogensen og hjú hjá Wow Air.

Helstu niðurstöður:

Ódýrasta flug fram og aftur án alls með Wow Air í júní kostar manninn 40.997 krónur. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 22.501 krónu. 82% verðmunur.

Ódýrasta flug fram og aftur án alls með Wow Air í júlí kostar manninn 45.497 krónur. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 33.453 krónur. 36% verðmunur.

Ódýrasta flug fram og aftur án alls með Wow Air í ágúst kostar manninn 39.499 krónur. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 29.682 krónur. 33% verðmunur.

 Ódýrasta flug fram og aftur með tösku með Wow Air í júní kostar manninn 54.991 krónu. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 32.231 krónu. 71% verðmunur.

 Ódýrasta flug fram og aftur með tösku með Wow Air í júlí kostar manninn 57,491 krónu. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 40.743 krónur. 41% verðmunur.

 Ódýrasta flug fram og aftur með tösku með Wow Air í ágúst kostar manninn 53.491 krónu. Sami díll hjá Vueling fæst ódýrast á 37.095 krónur. 44% verðmunur.

Endilega gerðu þinn eigin verðsamanburð ef þér finnst þetta merkilega mikill munur hjá tveimur lággjaldaflugfélögum. Þú kemst að sömu niðurstöðu 😉

* Úttekt gerð samtímis á vefum beggja aðila kl 20:30 þann 12. apríl 2018. Lægsta verð fram og aftur án tösku og með í hverjum mánuði fyrir sig. Hafa skal hugfast að verð breytast ört hjá flugfélögunum og oftast nær upp á við.