Það styttist í stóru stundina í Lissabon í Portúgal. Rétt mánuður áður en keppendur í Eurovision söngvakeppninni stíga þar á stokk og reyna að heilla almúgann í Evrópu.

Ein allra yndislegasta borg Evrópu og verðlag hreinn brandari. Mynd Teetime
Tær snilld að Portúgalar haldi söngvakeppnina þetta árið. Fyrir því nokkrar ástæður en þær helstar að Lissabon er efalaust ein allra skemmtilegasta höfuðborg Evrópu eins og lesa má um hér og ekki síður að í Portúgal er verðlag einn hagstæðast í öllum löndum álfunnar. Hér fáum við extra mikið fyrir lítið 🙂
Sem dæmi um það kíktum við að gamni á fimm stjörnu gistingu í höfuðborginni meðan á Eurovision stendur 8.- 12. maí næstkomandi. Með svo litlum fyrirvara má næstum gefa sér að verðlag þre- til fjórfaldast frá því sem eðlilegt er og ekki síður að allt sé meira og minna uppselt. Það eru jú tugþúsundir aðdáenda sem sækja viðburðinn heim hvort sem fólk á miða eða ekki.
En hvað kemur í ljós? Ekkert nema að enn má halla höfði á fimm stjörnu hótelum í borginni fyrir tómt klink…




Einhverjum kann að finnast þetta í dýrari kantinum. En reyndu að finna fimm stjörnu gistingu á besta stað í annarri evrópskri höfuðborg þegar stórviðburður á sér stað allt niður í sextán þúsund kall. Það er bara djók ef þú spyrð okkur 🙂







