Ýmislegt bendir til að hjá Icelandair sé mottóið að kyssa rassinn á sjéffanum og véfengja ekkert sem sá gamli ákveður. Sem er æði undarlegt prógramm hjá framúrstefnulegu fyrirtæki.

Jómfrúarferð glænýrrar þotu Icelandair, þeirrar fyrstu frá því á síðustu öld, og enginn fréttir af því. Skjáskot
Auðvitað er ekkert framúrstefnulegt hjá Icelandair, enda þar við stjórnvöl eintómir gamlir hvítir karlar, svo sú röksemd dettur sjálfkrafa dauð niður.
En einhver gæti haldið að gamalt rótgróið fyrirtæki sem hefur fengið feita flengingu á hlutabréfamörkuðum myndi nú aldeilis auglýsa í tætlur þá staðreynd að fyrirtækið er að taka í notkun sína fyrstu nýju og sparneytnu vél í rúmlega TUTTUGU ÁR. Eða var ekki Gutenberg duglegur að plögga fyrstu prentvélina þegar ekkert var í boði annað en handskrifa hvern einasta staf í bók eða blöð.
Vissulega er Icelandair ekki að breyta heiminum eins og Gutenberg sálugi en stórundarlegt er að Icelandair var að fljúga sínum fyrstu farþegum í glænýrri Boeing 737-Max og lét okkur vitandi engan vita. Samt er þetta fyrsta nýja flugvél fyrirtækisins sem tekur á loft á ÞESSARI ÖLD!!!
Einhver myndi kalla það ástæðu til að blása í nokkrar blöðrur, opna kampavín, bjóða blaðamönnum og halda partí.
En nei. Við þræddum vefmiðla landsins og hvergi sér þess merki að glæný vél Icelandair hafi flogið sitt allra fyrsta flug til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Það til New Jersey af öllum stöðum.
Var ekki París betri hugmynd? Bjóða blaðamönnum með og gefa öllum farþegum freyðivín og Ferrero Rocher plús frítt net alla leiðina. Plús auðvitað að fylla farþegarýmið af stórum hjartalaga rauðum blöðrum og hengja upp stórt plaggat af forstjóranum sem hatar að greiða fólki sómasamleg laun…
Neibbs. Hendum vélinni bara beint í áætlun og reynum ekkert til að endurvekja traust Íslendinga á þessu þreytta flugfélagi.
Út með stjórann. Ekki starfi sínu vaxinn.







