Forsvarsmenn Keflavíkurflugvallar neita að gefa upp hversu háum upphæðum er varið í auglýsingar af hálfu fríhafnarinnar. Hefur það vakið athygli síðustu tvö til þrjú ár hve mjög Keflavíkurflugvöllur auglýsir í fjölmiðlum og hvetur fólk til að koma fyrr og versla meira.
Ýmsir hafa haft á orði að sennilega sé þetta eini flugvöllur heims sem auglýsir grimmt þjónustu sína eins og til séu ferðalangar sem kaupi sérstaklega utanlandsferðir til þess eins að komast í fríhöfnina sem er þó engan veginn ýkja ódýr né úrvalið sérstaklega fjölbreytt.
Að sama skapi er yfirvöldum á vellinum illa við fyrirspurnir hvers konar og er skemmst að minnast að fjölmiðlum hefur ítrekað verið neitað um að framkvæma verðkönnun á fríhafnarsvæðinu. Þó fregnast reglulega að verð þar séu ekki ýkja mikið lægri en utan vallarins.






