Allnokkur flugfélög hafa breytt eða frestað áætlunarferðum sínum til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, vegna óeirðanna sem eiga sér stað í höfuðborginni og reyndar víðar.
Hafa þannig bæði Lufthansa og British Airways frestað ferðum til Kaíró í dag og BA hyggst fresta öllum flugum sínum að kvöldlagi til að gæta fyllsta öryggis meðan mótmæli standa yfir.
Enn hefur ekki orðið vart við óöldina á helsta ferðamannastað Egyptalands; Sharm el Sheik.






