Þeir eru ábyggilega margir sólþyrstir þarna úti og ekki síst nú eftir látlitla rigningu á helstu þéttbýlisstöðum. Þó gott sé fyrir gróðurinn þá er rigningin ekki svo frábær fyrir sálina en úr því er nú hægt að bæta svo um munar.

Wow Air að standa sig frábærlega þessi dægrin og út rúlla tilboðin á færibandi.

Wow Air að standa sig frábærlega þessi dægrin og út rúlla tilboðin á færibandi.

Flugfélagið Wow Air er að bjóða þessa stundina það sem sennilega eru bestu tilboð þeirra til Alicante frá upphafi. Önnur leiðin út fæst á tilteknum dagsetningum niður í 13.895 krónur án farangurs. Það er alveg fantagott verð í beinu flugi og hartnær helmingi lægra verð en hefðbundið verð aðra leiðina til Spánar hefur verið.

Wow Air heldur reyndar áfram að bjóða girnileg flugtilboð annað líka og allt niður í tíu þúsund krónur og er það kærkomin búbót fyrir landann.

Sem fyrr er þó pínu hængur á. Wow Air tiltekur ekki fjölda sæta á þessu lága verði né heldur gerir það einfalt að finna þær dagsetningar sem við eiga.

Þar sem þjónustulund Fararheill er meiri en það má hér sjá þær dagsetningar þar sem finna má flug aðra leið til Alicante þegar þetta er skrifað. Hafa skal þó í huga að þetta breytist ört og hratt og kannski eru aðeins tvo eða þrjú sæti í boði. Um það vitum við ekkert.

JÚNÍ: 24., 26.
JÚLÍ: 15., 17.
ÁGÚST: 23., 26.