Ferðaskrifstofan GB ferðir auglýsir í dag nokkra ferðapakka til Colorado næsta veturinn en skíðaferðir þangað njóta eðlilega vinsælda enda Klettafjöllin troðin af fínum brekkum um allt. En við setjum spurningarmerki við að auglýsa ferðirnar sem skíðaferðir því aðeins er um flug og hótel að ræða. 

Sniðugt að auglýsa skíðaferðir en ekkert brun í brekkunum innifalið. skjámynd

Sniðugt að auglýsa skíðaferðir en ekkert brun í brekkunum innifalið. skjámynd

Við höfum áður gagnrýnt slíkar auglýsingar. Hérlendis hafa ferðaskrifstofur og flugfélög auglýst „skíðaferðir“ eða „golfferðir“ og í tilvikum hefur bæði golfið og skíðaiðkun verið algjör aukakostnaður ofan á auglýst verð. Sem er helv. misvísandi en gefur auðvitað færi á að auglýsa verð sem á lítið skylt við raunkostnað við umræddar ferðir.

Dæmi um þetta er auglýsing GB ferða þar sem í boði er flug og hótel í Winter Park allt niður í 159 þúsund krónur á mann í janúar 2015. Ágætt verð og ágætt hótel en ætli fólk að spenna á sig skíði eða bretti í þessari ferð þarf að punga út töluvert hærri upphæð en auglýst er.

Inn í tölu GB vantar nefninlega skíðapassa sem eru jú nauðsyn ætli menn í brekkurnar og ekki síður vantar að geta um kostnað til og frá flugvelli.

Tökum dæmi um ferð þann 3. janúar til 11. janúar. Auglýst verð 159.000 hjá GB ferðum. Þá er flugið og hótelið komið. Skíðapassi þennan tíma kostar manninn 45.500 krónur miðað við gengi dagsins og láti fólk skutla sér til og frá flugvelli bætast við rúmar fimmtán þúsund krónur á mann.

Þannig hættir „skíðaferðin“ að kosta 159 þúsund krónur á mann og verður 219 þúsund krónur á haus. Samtals kostnaður á par 438 þúsund. en ekki 318 þúsund eins og skilja má í fyrstu. Verðmunurinn á raunverulegri skíðaferð og auglýstri „skíðaferð“ er þannig tæplega 40 prósent takk fyrir.