Næst þegar flugstjóri Icelandair tilkynnir á miðri leið heim að veðrið heima á klakanum sé óvenjulega hvasst er þjóðráð að kaupa drykki og eitthvað matarkyns strax því eftir að vélin er lent má helvíti brenna yfir áður en flugþjónar Icelandair sýna minnstu tilburði til að veita nokkra þjónustu.
Seinnipartur sunnudagsins 10. apríl var sérstakur fyrir um tvö þúsund farþega á leið til Keflavíkur því verulegt óveður gerði að verkum að um fimm klukkustunda skeið komust engar vélar að landgöngum Leifsstöðvar sökum hvassviðris.
Tilviljun réði því að tveir úr ritstjórn Fararheill voru í þessum ólukkulega hópi sem sat fastur en þó með mismunandi flugfélögum.
Í vél Icelandair frá Amsterdam gaf flugstjóri vélarinnar þrívegis upplýsingar um ekki neitt á fimm klukkustunda tímabili. Engin afsökunarbeiðni kom í neitt þeirra skipta. Enginn matur var til og eftir tveggja klukkustunda bið á vellinum brugðu flugþjónar á það ráð að gefa öllum glas af vatni og þær birgðir sem til voru af núðlum og Pringles var komið fyrir í litlum glösum og dreift meðal farþega. Ekki kom til greina að rjúfa innsigli á bjór eða léttvíni um borð því það „hefði komið Icelandair afar illa gagnvart tollinum“ samkvæmt upplýsingum frá flugþjóni.
Öðru máli gengdi um borð í vél Iceland Express frá Gatwick. Þar var biðin skemmri um klukkustund en birgðir um borð virðast hafa verið meiri því samlokur og drykkir fengust lengi vel án vandræða. Þá var barinn sérstaklega opnaður og burtséð frá kostum eða ókostum þess var um áberandi betri þjónustu að ræða þar.
Á móti kom að afþreyingarkerfi Icelandair er betra en hjá Iceland Express og bil milli sæta er aðeins meira sem skiptir verulegu máli þegar sitja þarf kyrfilega í sætum sínum í sex til sjö klukkustundir.






