Um tvö þúsund farþegar voru strandaglópar fyrir utan Leifsstöð vegna óveðurs í dag en þá komust einar tíu farþegaþotur hvorki lönd né strönd sökum hvassviðris. Þó ástandið í dag hafi verið óvenju slæmt hefur Fararheill.is eftir starfsmönnum í Leifsstöð að slíkt gerist þrisvar til fjórum sinnum árlega þó tafirnir hafi aldrei verið svona slæmar.
Þeir farþegar sem urðu að sætta sig við hvað lengsta bið sátu í vélunum með útsýni yfir Leifsstöð í rúmlega fimm klukkustundir meðan blikkbeljurnar slógust til og frá.
Að sögn talsmanns Isavia, rekstraraðila Leifsstöðvar, var ekkert við þessu að gera. Landgangar Leifsstöðvar séu af fullkomnustu gerð en í þeim 30 til 40 metrum á sekúndu sem vindar blésu í dag voru þeir gagnslausir með öllu.






