Þrátt fyrir að eyða tugmilljónum króna árlega í flottar ímyndarherferðir virðist ást Íslendinga á flugfélaginu Icelandair rista grunnt.

Fáir á samfélagsmiðlum gefa Icelandair nokkuð nema falleinkunn virðist vera.
Hríðfallandi gengi hlutabréfa Icelandair hefur verið mál málanna síðustu sólarhringa en þegar þetta er skrifað hefur virði flugfélagsins rýrnað um fjórðung nánast á augabragði. Víða erlendis fengju menn feitt og instant lokaspark í rass fyrir slíkt hörmungarfall en þetta er jú Ísland svo ekki er von á breytingum á yfirstjórn Icelandair vegna þessa.
Ritstjórn langstærsta og óháðasta ferðavefs landsins, Fararheill, mun um helgina birta sitt álit á þessum slæmu fréttum fyrir flugfélagið en þangað til er fróðlegt að lesa umsagnir lesenda hjá fjölmiðlunum við þeim tíðindum að virði Icelandair falli hraðar en mannorð Sigmundar Davíðs eftir Panama-pakkann.
Þó aldrei megi draga neinn Salómonsdóm þá er athyglisvert að á ummælavef fréttavefs Vísis er ekki einn aðili sem tekur til varna fyrir Icelandair í þeim fréttum sem birtar hafa verið síðustu sólarhringa. Undantekningarlaust hrauna lesendur yfir flugfélagið vegna málsins eins og hraun sé í tísku. Það er nokkuð sem stjórnendur fyrirtækisins ættu sannarlega að taka alvarlega því flugfélag sem ekki nýtur hylli í sínu eigin heimalandi mun aldrei standa á traustum fótum. Gildir þá einu hversu dýrar ímyndarherferðir farið er í.




Svo er auðvitað minnst ein frábær ástæða til að snúa viðskiptum sínum annað en til Icelandair eins og lesa má um hér.







