Lengi vel hefur ritstjórn Fararheill undrast þegar almenningi í landinu finnst bara ekkert að því að eiga viðskipti við fyrirtæki í eigu manna sem sannað er að hafa haft okkur að fíflum um áraraðir. Hvað þá að eiga viðskipti við menn sem vilja halda launum í landinu lágum og að við borgum líka enn hærri skatta.

Forstjórinn sem vill að þú borgir hærri skatta.
Það er nákvæmlega það sem forstjóri Icelandair, Björgólfur Jóhannsson, vill fá fram en þrátt fyrir tugmilljóna launatekjur árlega og ótaldar milljónir í hlutabréfum og sporslum vill ríki forstjórinn að plebbarnir sem í landinu búa greiði meira til þjóðarbúsins. Fyrir utan auðvitað að ríkið losi sig við öll fyrirtæki og stofnanir sem skila einhverjum arði til þjóðfélagsins.
Þetta er forstjóri fyrirtækis sem er bakhjarl fyrirbæris sem kallast Festa og stendur fyrir samfélagsábyrgð. Forstjóri sama fyrirtækis og lagðist hart gegn því að hér yrði tekið upp komugjald á ferðamenn fyrir nokkrum árum. Komugjald sem hefði að líkindum dugað til að lagfæra töluvert af vegum landsins, byggja klósett á vinsælum stöðum og gert lögreglu og björgunarsveitum kleift að sinna vinnu sinni betur gagnvart ferðafólki. Núna.
Þetta er forstjóri sama fyrirtækis og fær langversta útreið á fyrirtækjalistum VR ár hvert frá sínum eigin starfsmönnum fyrir slæm launakjör. Það á sama tíma og greiðslur Icelandair til hluthafa skipta tugum milljarða.
Þetta er forstjóri sama fyrirtækis og tekur sér vikur og jafnvel mánuði að koma til móts við viðskiptavini þegar eitthvað bjátar á í ferðum á vegum Icelandair. Sama fyrirtæki og tapar tíu málum árlega þegar það neitar að greiða viðskiptavinum bætur fyrir tafir eða vesen á ferðum og flugi.
Þetta er forstjóri sama fyrirtækis og montar sig af því að hjálpa fárveikum börnum einu sinni á ári þegar peningarnir koma frá viðskiptavinum. Á sama tíma eyðir fyrirtækið tugmilljónum króna í dúllulegar auglýsingar.
Þetta er forstjórinn sem vill að almenningur, ríkið, selji frá sér Landsvirkjun, ÁTVR, Leifsstöð, Landsnet og alla bankana svo fátt sé talið. Forstjóri Icelandair vill sem sagt að Íslendingar losi sig við hvert einasta batterí sem skilar peningum í kassann. Hann minnist ekkert á stofnanir sem skila tapi ár eftir ár eins og menntastofnunum eða sjúkrastofnunum. Hann vill ekkert með það hafa. Almúginn má eiga það drasl.
Svo vill stjóri Icelandair líka að Svenni pípari, Gulla hárgreiðslukona, Tómas rithöfundur og Ásbjörg bóndi greiði nú enn hærri skatta en nú er og fyrirtæki landsins minna. Ekkert tillit til að Íslendingar eru að greiða hærri skatta en velflest fólk í hinum vestræna heimi meðan fyrirtækjaskattar hérlendis eru lágir í alheimssamanburði. Ergo: auka misjöfnuð í þjóðfélaginu helling! Björgólfur ætti að sækja um hjá Donald Trump hið fyrsta. Hann smellpassar í stjórn þess manns.
Í alvöru krakkar. Viljum við setja peninga í vasa slíks manns? Ef ekki, þá notar þú önnur flugfélög en Icelandair.







