Þótt fátítt sé að frá Íslandi sé boðið upp á ferðir til Góa á Indlandi er staðurinn einn sá vinsælasti meðal evrópskra ferðamanna og sá vinsælasti reyndar í öllu Indlandi. Illu heilli fara glæpir gegn ferðamönnum þar vaxandi.
Breskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að greina frá ýmsu því er miður hefur farið hjá þarlendum ferðamönnum sem dvalið hafa í Góa. Enskir ferðamenn hafa verið myrtir og rændir þar og virðast stjórnvöld lítt afhafst til að sporna gegn því sem sumir kallar faraldur.
Skemmst er að minnast Flórída 1995 þegar tveir erlendir ferðamenn voru myrtir þar en við það fækkaði ferðamönnum þangað um 20 prósent á augabragði. Tók fjögur ár að endurheimta sama fjölda ferðalanga og sóttu fylkið heim fyrir morðin.
Má ljóst vera að indversk stjórnvöld verða að herða róðurinn gegn glæpamönnum ef Góa á að halda vinsældum sínum en þar er ákaflega ódýrt að vera og gista. Kannski of ódýrt því síðustu ár hefur Góa fengið á sig Pattaya-stimpil sem kjörinn staður fyrir ódýrt kynlíf í ofanálag við annað sem kostar þar lítið sem ekkert.








