Tíðindi

Miljarður fólks á faraldsfæti þetta árið

  14/12/2012No Comments

Þriggja daga borgarferð breskrar konu til Madríd á Spáni breyttist aldeilis skyndilega í gær þegar tekið var á móti henni allsendis óvænt og fyrirvaralaust af ferðamálayfirvöldum í borginni. Ástæðan sú að þessi kona var miljarðasti ferðamaðurinn í heiminum árið 2012.

Ekkert lát er á fjölda ferðamanna í veröldinni og í gær taldist milljarðasti ferðamaðurinn þetta árið.

Þessi ákveðna kona er auðvitað aðeins táknræn enda ómögulegt að vita hvar í heiminum miljarðasti ferðamaðurinn steig niður fæti en fræðingar höfðu reiknað út fyrir allnokkru að þrettánda desember yrði sá milljarðasti á faraldsfæti.

Kemur það kannski einhverjum á óvart miðað við efnahagslægð og kreppu víða um heim að ekkert bólar á dýfu hvað ferðamennsku varðar. Þvert á móti fjölgar þeim sýknt og heilagt eins og við Íslendingar höfum fengið að kynnast. En nú eru líka farnir að telja töluvert sá mikli fjöldi Kínverja og Indverja sem komnir eru í millistéttarhóp og eiga því fjármuni aflögu til ferðalaga um heiminn.

Fram kom í hófi í Madríd vegna þessa viðburðar að Spánverjar sjálfir geta glaðst yfir minnst einum hlut í öllum sínum efnahagshrakningum. Stjórnvöld áætla að til landsins komi 58 milljónir ferðamanna þetta ár en það er met.