Fyrir tíu árum síðan naut vinsælda rómantíska kvikmyndin Captain Corelli´s Mandolin sem gerðist á grísku eynni Kefalóníu í Seinni heimsstyrjöldinni. Sú eyja er ein af mörgum yndislegum eyjum landsins og hluti hennar að mestu laus við fjöldatúrisma.
Breska ferðaskrifstofan A1 Travel býður næstu fimm dagana tilboð á ferðum til eyjarinnar í maí á næsta ári þar sem gist verður á flottu og verðlaunuðu fjögurra stjörnu hóteli í smábænum Katelios. Prísinn fyrir flug til og frá Gatwick í London, allar ferðir, gistingu með öllu inniföldu í sjö daga er þó ekki nema rétt rúmar 75 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Plús reyndar þrjú þúsund króna gjald fyrir hverja tösku.
Þá þarf auðvitað að reikna með ferð til og frá London en þar sem umrætt tilboð nær til ferða í maí er leikur einn að verða sér úti um gott fargjald frá Íslandi og sé heppnin með ætti að finnast fargjald kringum 15 til 20 þúsund á mann eða 30 til 40 þúsund samtals.
Með þessum hætti er þó komist í sjö daga alvöru afslöppun í byrjun sumars, áður en hitastig við Miðjarðarhafið verður óþægilega heitt, fyrir 120 þúsund krónur á mann.
Það er tilboð sem bragð er að.
Tilboðið hér.
View Eyjan Kefalonia í Grikklandi in a larger map






