Í maí á næsta ári gefst Íslendingum fyrsta sinni kostur á að fljúga beint til Alaska-fylkis í Bandaríkjunum en þá hefst tímabundið flug Icelandair til borgarinnar Anchorage. Verður það aðeins annað flugfélagið sem býður beint flug frá Evrópu til þessa útkjálka Bandaríkjanna.

Borgin Anchorage í Alaska er einn þriggja nýrra áfangastaða Icelandair á næsta ári en vandséð er að íslenskur meðalplebbi þvælist mikið þangað enda tiltölulega dýr pakki
Lausleg úttekt á vef Icelandair leiðir í ljós að ódýrasta fargjaldið í boði báðar leiðir í sumar er fráleitt gefins. Punga út að lágmarki á fjórða og lakasta farrými flugfélagsins rúmum 126 þúsund krónur fyrir flugið. Þá eiga áhugasamir eftir að finna og greiða fyrir samastað og annað og Anchorage er ekki sérstaklega ódýr borg.
Þó eru ódýrustu fargjöld Icelandair nokkuð billegri en hjá hinum aðilanum sem býður beint flug frá Evrópu til Anhorage. Ódýrustu fargjöld sem finnast við lauslega leit á vef þýska Condor flugfélagsins sem flýgur frá Frankfurt sýnir að lágmarkskostnaður þaðan er um 150 þúsund krónur fram og tilbaka.
View Anchorage í Alaska in a larger map






