Fjöldi fólks þekkir ekki rétt sinn til bóta komi til mikilla tafa eða frestunar á flugi samkvæmt nýrri könnun Fararheill. Þar segjast 55 prósent þátttakenda ekki vita til þess að bætur megi fá fyrir slíkt. Það er hins vegar reyndin ef töfin er umtalsverð.

Tefjist flugið þitt lengur en þrjár klukkustundir getur meira en verið að þú eigir að fá bætur. En þú þarf að sækja þær.
Það kemur lítið á óvart að meirihluti þeirra tæplega 400 sem þátt tóku í könnun Fararheill kunni ekki skil á rétti sínum hvað flug og tafir varðar enda engan veginn flugfélögum eða ferðaskrifstofum í hag að opinbera slíkt. Fjölmiðlar íslenskir gera neytendamálum aldrei hátt undir höfði og nokkuð ítarleg leit á Google leiðir ekki í ljós eina einustu frétt um réttindi farþega sem verða fyrir miklum töfum eða aflýsingum flugs. Engin kynning er á réttindum fólks á vef Neytendastofu sem þó lögum samkvæmt hefur það eitt markmið að vernda neytendur.
Nei! Fólk þarf að klóra sig inn á flókinn vef Flugmálastjórnar til að finna vott um að það gæti átt bætur inni þegar flugferð tefst fram úr hófi eða er aflýst.
Fararheill hefur ítrekað skrifað um réttindi farþega í þeirri von að fólk þekki og sæki rétt sinn og við gerum það einu sinni enn.
[…] Af þessu leiðir að allir farþegar sem verða fyrir þriggja tíma seinkun á flugi sínu eða meira, og koma á ákvörðunarstað þremur tímum síðar eða meira en upprunalega áætlun flugrekendans kvað á um, geta átt rétt á bótum skv. 7. gr., nema flugrekandi geti sýnt fram á að töfin hafi verið vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Reglur hér á landi taka mið af Evrópureglum og Evrópudómstóllinn hefur ítrekað staðfest þetta. Margir halda að aðstæður eins og eldgos eða vélabilanir hljóti að falla undir „óviðráðanlegar“ aðstæður fyrir flugfélag en svo er þó ekki. Fjölmargir aðilar hafa fengið bætur vegna tafa vegna eldgoss eða vélabilana hjá íslenskum ferða- og flugaðilum.
Tefjist flug þitt um þrjár stundir skaltu umsvifalaust ganga á flugfélagið og krefjast bóta. Gangi það ekki senda kvörtun til Flugmálastjórnar. Hún kveður upp sinn úrskurð og undantekningarlítið falla ákvarðanir þeirra í skaut farþega.
Vefkönnun Fararheill leiddi í ljós að 55 prósent vissu ekki til þess að bætur fengjust vegna tafa á flugi. 22 prósent höfðu látið reyna á bótaskyldu vegna tafa án árangurs en 23 prósent svarenda höfðu krafist skaðabóta vegna tafa og fengið.
Alls svöruðu 398 manns í þessari vefkönnun Fararheill. Hún er ekki vísindaleg á neinn hátt en gefur góðar vísbendingar um stöðu mála.
Allt um tafir og bætur á vef Flugmálastjórnar hér.






