Tíðindi

EasyJet lært sína lexíu en Wow Air ekki

  11/12/2012No Comments

Vart hefur farið framhjá nokkrum sem les greinar Fararheill að við höfum oft og ítrekað skammast út í Wow Air fyrir að auglýsa fargjöld sín með öllum sköttum og gjöldum en þó ekki með öllum sköttum og gjöldum. Hið fræga og undarlega bókunargjald er aldrei innifalið í auglýsingum fyrirtækisins.

easyJet tekur nú skýrt fram að ÖLL gjöld og skattar séu innifaldir í uppgefnu og auglýstu verði. Það gerir Wow Air ekki

Gagnrýnin var hugsuð sem uppbyggjandi en markaðsgúrúar fyrirtækisins, og þeir eru allnokkrir eftir því sem Fararheill kemst næst, hafa látið þá gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Kannski er félagið hafið yfir gagnrýni.

Þetta er hins vegar einn plús einn dæmi því ekki þarf að leita lengi á fésbókarvef  Wow Air til að finna mýmargar kvartanir vegna þessa gjalds sem greinilega kemur fólki mjög á óvart.

Eðlilega enda hlýtur það að stríða gegn eðlilegum viðskiptaháttum að auglýsa vöru á ákveðnu verði en neita að afhenda hana nema gegn aukagjaldi.

En það er ekki vandamálið enda bæði Samkeppniseftirlitið og Neytendastofa tannlaus fyrirbæri og Wow Air þarf ekkert að óttast þaðan. En starfsmenn fyrirtækisins þurfa hins vegar að muna að Ísland er lítið, allir þekkja alla og orðið breiðist hratt út.

Það er ólíkt gáfulegra að hafa alla góða og áfram bjóða lægsta verðið þótt það sé 13.800 í stað 12.900 en að gera fólk reitt og gramt í geði þegar 12.900 króna tilboðið reynist ekki á rökum reist.

Og svona ef útlærðir markaðsfræðingarnir hjá Wow hafa ekki nennt að kíkja í nýjustu markaðsfræðibækurnar eftir að námi lauk þá bendir Fararheill á að meira að segja lággjaldafélagið easyJet, sem lengi birti heldur ekki bókunargjald í auglýsingum sínum hefur nú aldeilis breytt um stefnu. Þar greiðir þú nákvæmlega það verð sem auglýst er.