Tíðindi

Þessa staði ættu trúleysingjar að forðast

  11/12/2012október 17th, 2015No Comments

Það er vandlifað í heiminum og vandferðast líka.

Það á ekki hvað síst við um trúleysingja eða þá sem annaðhvort trúa ekki á æðri máttarvöld. Detti slíku fólki í hug að opna sig um trúleysi sitt á nokkrum stöðum í heiminum getur refsingin við slíku verið dauði.

Slík lög eru í lögbókum þjóða á borð við Íran, Sádí-Arabíu, Kuwait, Súdan, Máritaníu, Afganistan og á Maldive- eyjum. Lítið þarf að óttast fjöldaferðamennsku til Afganistan á næstunni en að slík lög finnist í bókum Maldives eyja þar sem tæpur helmingur allra tekna landsins kemur frá vestrænu ferðafólki kemur einhverjum kannski á óvart.

Ekki svo að skilja að aftökur vegna trúleysis ferðamanna séu algengar í þessum löndum en varinn er jú skrambi góður og það er oft svo að trúleysingjar taka gjarnan til máls um trúmál þegar eldvatn rennur um æðar. Það er slæm hugmynd.